|
Góðan dag. Ég ætla að panta hringferð kring um landið.
- Já, við erum með gott tilboð um vikuferð. Það er lagt af stað á mánudagsmorgni og komið til baka á sunnudegi.
Hvar er stoppað á leiðinni.
- Fyrsta daginn er farið austur fyrir fjall til Þingvalla og svo að Gullfossi og Geysi.
Hvar er gist?
- Annaðhvort er gist á hótelinu við Geysi eða á Flúðum, sem er þéttbýli á Suðurlandi.
Hvert er svo haldið? Er eitthvað merkilegt að sjá á Suðurlandi?
- Á öðrum degi er farið um Vík í Mýrdal og yfir sandana. Ef veður er gott er farið út í Ingólfshöfða. Það er alltaf stoppað við Skógarfoss sem er undir Mýrdalsjökli.
Er ekki stoppað við Skaftafell og jöklana.
- Jú það er bæði stoppað við Skaftafell og við Jökulsárlón. Ef veður er gott er hægt að fara í smá siglinu á Jökulsárlóni.
Er það ekki hættulegt?
- Nei, ekki ef farið er eftir öllum reglum. Bátarnir eru öruggir.
Hvar er gist á þessari leið?
- Ferðin liggur alla leið að Höfn í Hornafirði. Þar eru margir gistimöguleikar.
Hvernig eru vegirnir, eru bara malarvegir á Íslandi?
- Vegirnir eru mjög góðir víðast hvar. Það eru bara stuttir spottar sem ekki eru með bundnu slitlagi.
Hvað gerist á næsta áfanga ferðarinnar?
- Frá Höfn liggur leiðin um suðurfirði. Þetta eru þröngir firðir með háum fjöllum og vegirnir eru ekki sem allra bestir hér.
Er hættulegt að keyra þarna?
- Nei, en það verður að fara gætilega. Sérstaklega ef maður er mikið að skoða.
Hvað er skemmtilegt að skoða?
- Þegar komið er í Álftafjörð, er gaman að sjá þúsundir álfta á firðinum. Fjörðurinn er oft næstum því hvítur af fugli.
Þarf að keyra alla firðina út og inn?
- Já flesta, en það er hægt að fara fjallveg yfir Öxi og til Egilsstaða. Þá sleppur maður við að keyra langa firði. En þar er líka margt skemmtilegt að sjá.
Okkur langar að skoða Fljótdalshérað og Hallormsstaðarskóg.
- Þá förum við Öxi og notum daginn til að skoða Héraðið og skógræktina.
Er leiðin til Mývatns löng?
- Nei það er góð dagleið að fara frá Egilsstöðum til Mývatns og skoða sig um þar. Það er margt að skoða við Mývatn.
Okkur langar að skoða eldfjöllin og svo að baða í bláa lóninu við Mývatn.
- Ekkert mál. Þið verðið bara að vera dugleg að ganga. Við reiknum með heilum degi við Mývatn og hvalaskoðun á Húsavík.
Það eru nú ekki margir dagar eftir af ferðinni og við erum bara hálfnuð hringinn.
- Já, í þessari ferð sleppum við Vesturlandinu. Við förum frá Mývatni yfir hálendið til Suðurlands. Það tekur tvo daga þar sem við komum við í Reykholti á leiðinni.
Af hverju á að koma við í Reykholti?
- Af því að Reykholt er fyrir norðmann eins og Mekka er fyrir Múhameðstrúarmann. Það er skylda að heimsækja Reykholt, þar sem Snorri Sturluson bjó.
Er þetta ekki erfið ferð og mikið að gerast?
- Jú en það verður líka að vera ef maður ætlar að sjá og upplifa. Það er líka hægt að fara beint norður og eyða heilli viku við Mývatn. Það gera það margir og fá aldrei nóg.
Ég held við tökum svona hringferð, hvað kostar svona ferð?
|