Islandsk

Velkommen

Kurstilbud

Nybegynnerkurs

Viderekomne kurs

Grammatikk

Linker

Dikt og diktere

Alt mulig -

Kursmateriell 1

Kursmateriell 2

Kursmateriell 3

Bøker og litteratur

Bakgrunn for nyhetene

E-Mail


 

Dialog 3a

Dialog 3a  

 >>Gå tilbake til kursoversikt - nybegynnerkurs Dialog 3a  

 

 

 

Snorri Sturluson

 

 

Snorri Sturluson var merkilegur maður. Hvenær var hann uppi?

  • Snorri fæddist á Hvammi í Dölum árið ellefu  hundruð sjötíu og níu.

 

Hvar er Hvammur í Dölum?

  • Hvammur er bóndabær á Vesturlandi, í Dalasýslu. Þar hefur verið stórbýli.

 

Svo Snorri var bara venjulegur bóndasonur? Ég hélt hann hefði verið höfðingjasonur.

  • Sturla, pabbi Snorra, var stórbóndi og ráðríkur. Han lenti upp á kant við nágranna sína, þar á meðal Pál prest í Reykholti.

 

Mér skilst að það hafi oft verið deilur milli stórbænda á þessum tíma.

  • Já, það var mikið um deilur og mannvíg.

 

Hvernig leystu menn deilur og ágreining? Lögregla og lögfræðingar voru ekki komnir til sögunnar.

  • Jú, það má segja það. Mál voru tekin upp á Alþingi og þar var dæmt í málum. Stundum voru mál leyst með sáttargjörð.

 

Hvernig gerðist það, var einhver sáttargjörðarmaður?

  • Sumum mönnum var betur treyst til þess að standa vörð um sáttargjörð.

 

Varð sátt á milli Sturlu og Páls prests í Reykholti?

  • Já á vissan hátt. Jón Loftsson í Odda á Rángárvöllum fenginn til að leysa deiluna.

 

Jón Loftsson! Var ekki Sæmundur Fróði afi hans. Og var ekki Jón Loftsson sonur Þóru sem var óskilgetin dóttir Magnúsar berfætlings Noregskonungs.

  • Allt þetta er rétt. Og þetta hefur kanski haft áhrif á Snorra. Í sáttargjörðinni milli Sturlu og Páls var ákvæði um að Snorri færi í fóstur til Jóns Loftssonar. Hann var einskonar trygging fyrir því að sáttin héldist.

 

Snorri kom því inn á þetta mesta lærdómssetur á Íslandi og kanski á öllum Norðurlöndum, vegna sáttargjarðar.

 

 

 

 

 

 

 

stórbýli – storgård

 

 

venjulegur –

       alminnelig, vanlig

 

upp á kant – bli uvenn

                     med

 

deila – krangel, 

                  uenighet

mannvíg – drap

 

 

ágreiningur – uenighet       

lögregla – politi

lögfræðingur – jurist

mál – sak

sáttargjörð – avtale

             om enighet

 

sáttargjörðarmaður –

                        mekler

treysta – stole på

 

 

 

 

 

 

óskilgetin – uekte

Magnús berfætlingur – Magnus barfot

 

ákvæði – paragraf

fóstur – oppdragelse

trygging – forsikring

 

lærdómssetur –

           lærdomssete

 

Höfðinginn Snorri.

 

 

Var Snorri Sturluson valdamikill og ríkur?

  • Já Snorri var um langan tíma valdamesti maður á Íslandi  og sá ríkasti.

 

Var hann ríkur á sama tíma og hann skrifaði allar bækurnar?

  • Já, þetta fór saman. Það er kannski söguleg heppni að Snorri var svo margslunginn. Enginn fátækur sagnfræðingur hefði getað komið því í verk sem Snorri gerði.

 

Hvernig varð Snorri ríkur. Ekki gat hann bara keypt jarðir og búskap?

  • Nei, en hann gifti sig til auðæfa. Rúmlega tuttugu ára gifti hann sig Herdísi, dóttur Bersa ríka á Borg á Mýrum. Með því eignaðist Snorri jarðir í Borgarfirði.

 

En Snorri bjó í Reykholti. Það var stórbýli.

  • Já, Snorri og Herdís bjuggu á Borg í nokkur ár en skildu þegar Snorri flutti í Reykholt.

 

Hvenær var það?

  • Það var árið tólf hundruð og sex.

 

Bjó Snorri þá einn í Reykholti?

  • Hann var aldrei einn, en hann giftist ekki aftur fyrr en löngu seinna. Þá gifstist hann ríkri ekkju, Hallveigu Ormsdóttur. Hún var sögð vera ríkasta konan á Íslandi.

 

Átti Snorri einhver börn?

  • Snorri átti mörg börn. Tvö barna Snorra og Herdísar uxu úr grasi, Jón murti og Hallbera. Snorri átti síðan fleiri börn með fleiri konum og svo fórsturbörn með Hallveigu.

 

Var það allt í lagi að stórhöfðingi eins og Snorri ætti börn í lausaleik.

  • Það var ekki glæpsamlegt og höfðingjum leyfist það sem almúginn bara dreymir um.

 

 

valdamikill – maktstor

 

 

 

söguleg – historisk

heppni – lykke

sagnfræðingur –

                  historiker

jörð (jarðir) – gård

 

auðæfi – rikdom

 

eignast – bli eier

 

 

skilja (skildu) – ble

                         skilt

 

 

 

 

ekkja – enke

sögð vera – sagt å

                     være

 

 

 

stórhöfðingi – stor

                      høvding

lausaleik – utenom ekteskap (løssluppent)

glæpsamlegt –

                    kriminelt

almúgi – almue

 

 

 

 

Snorri og konungurinn

 

 

Á dögum Snorra var Íslands sjálfstætt ríki. Það er oft kallað Þjóðveldi með Alþingi sem æðsta vald.

  • Var þá enginn konungur eða ríkisstjórn?

 

Nei, það voru bara höfðingjar og ættir og á Alþingi var lögsögumaðurinn æðstur. Það var lögsögumaðurinn sem túlkaði lögin.

  • Var Snorri lögsögumaður?

 

Já, Snorri var lögsögumaður í tvö tímabil. Fyrst frá tólfhundruð og fimmtán til tólfhundruð og átján og síðan aftur frá tólfhundruð tuttugu og tvö til tólfhundruð þrjátíu og eitt.

  • Var þá ekkert samband við konungsveldið í Noregi?

 

Það var alltaf samband við Noreg og norsku konungana. Þú verður að muna að landnámsmennirnir fóru til Íslands, meðal annars, til að komast undan konungsvaldi.

  • Var engin ásókn frá Noregi í að ráða yfir landinu?

 

Smám saman varð ásóknin þyngri, sérstaklega eftir að konungsvaldið í Noregi varð sterkara.

  • Hvernig var afstaða Snorra til norsku konunganna?

 

Snorri var tvöfaldur í roðinu. Hann var handgenginn konungsvaldinu en gerði lítið í að afla því stuðnings á Íslandi.

  • Hvaða konungur var í Noregi á þessum tíma?

 

Hákon Hákonarson varð konungur þegar hann var lítill strákur, rétt eftir aldamótin tólfhundruð. Hann var síðan konungur til tólfhundruð sextíu og þrjú.

  • Var Snorri góður vinur Hákonar?

 

Á meðan Hákon var barn að aldri réði Skúli jarl mestu og Snorri og Skúli voru góðir vinir. Þegar Hákon varð eldri og vildi fara að ráða lenti hann upp á kant við Skúla jarl og þá um leið Snorra.

  • Hafði það einhver áhrif á völd Snorra á Íslandi að Skúli jarl missti valdastöðu sína í Noregi?

 

Það hafði mikil áhrif og leiddi til þess að Snorri var drepinn.

  • Hvernig gerðist það?

 

Hákon sá að Snorri var ekki lengur duglegur fulltrúi fyrir konungsvaldið á Íslandi og fékk annan til þess að vera fulltrúi konungsvaldsins. Það var Gissur Þorvaldsson.

  • Var ekki Gissur eitthvað tengdur Snorra?

 

Jú, Gissur var áður tengdasonur Snorra, hann var giftur Þórdísi dóttur Snorra.

  • Þannig að þetta varð þá valdabarátta innan fjölskyldunnar?

 

Það má nú segja. Þegar Snorri var drepinn í Reykholti í september tólfhundruð fjörutíu og eitt, voru bæði tengdasynir og fóstursynir í árásarliðinu.

  • Svo Snorri hefur aflað sér margra óvina á Íslandi?

 

Já, hann var slunginn valdamaður og gráðugur í fé og eignir. Og hann gaf sig ekki.

  • Maður skyldi halda að Snorri hafi verið mjúkur maður af því að maður hugsar mest um hann sem stórkostlegan rithöfund?

 

Líklega hefur Snorri verið hvorttveggja, valdasjúkur og mjúkur. Það er gaman að lesa bók Torvald Steen um fimm síðustu daga í lífi Snorra. Sú bók heitir “Den lille hesten”.

 

 

 

sjálfstætt –

             selvstendig

Þjóðveldi – folkemakt

æðsta – øverste

lögsögumaður –

              lovsigemann

túlka – tolke

 

 

 

konungsveldi –

            kongemakta

 

 

 

 

ásókn – pågang

 

 

afstaða – forhold,

                   holdning

afla stuðnings –

               skaffe støtte

strákur – gutt

aldamót –

           århundreskifte

 

 

 

lenda upp á kant – bli

                 uvenn med

 

 

gerðist – skjedde

duglegur – dyktig,

                       flink

 

tengdur – beslektet,

                      tilknyttet

 

 

tengdasonur –

                 svigesønn

valdabarátta –

                  maktkamp

 

árásarlið –

            angrepstropp

gráðugur – grådig

 

 

mjúkur – myk

stórkostlegur –

                   storartet

rithöfundur – forfatter

hvorttveggja – både

valdasjúkur – maktsyk

 

 

 

 

 >>Gå tilbake til kursoversikt - nybegynnerkurs