>>Gå tilbake til kursplan - viderekomne
Samtale over en kaffekopp – spjall yfir kaffibolla.
Tvær konur hittast á götunni fyrir utan hús annarrar:
- Hæ, sæl og blessuð! Þú ert bara heima?
Já, það er ekkert að gera í frystihúsinu.
- Komdu innfyrir og fáðu þér kaffibolla.
Þær ganga inn um dyrnar og inn í ganginn.
- Við skulum fá okkur sæti í eldhúsinu.
Takk, en hvað þú hefur það huggulegt hérna. Ertu búin að fá þér nýjan örbylgjuofn?
- Já, það var nauðsynlegt, sá gamli var orðinn svo lélegur.
Þessi heimilistæki ganga úr sér áður en varir. Við vorum að fá okkur nýjan ísskáp, sá gamli virkaði næstum því sem hitaskápur.
- En hvernig er það, voruð þið ekki að setja nýja innréttingu í eldhúsið?
Það varð ekkert af því. Við þurftum að innrétta baðið, það var að verða ónýtt, raki og saggi.
- Það kostar nú mikið að innrétta bað, það er ekki gefið.
Við náðum í skemmtilega innréttingu á útsölu í byggingarvöruversluninni, fengum helmings afslátt.
- Systir mín var að kaupa nýja íbúð í blokk. Það er þriggja herbergja íbúð.
Er það stofa og tvö svefnherbergi, bað og eldhús?
- Já og svo er geymsla í kjallaranum og sameiginlegt þvottahús. Hún notar það ekki af því að hún er með eigin þvottavél uppi. Hún hefur þvottavélina inni á baði.
Það var nú einmitt það sem eyðilagði baðið hjá okkur. Það kom svo mikil gufa frá þvottavélinni.
- Fáðu þér meira kaffi.
En hvað þetta er sætt bollastell. Hvar keyptir þú það?
- Við fengum heilt matarstell, sex af öllu, í pöntunarlistanum á netinu.
Pantar þú mikið á netinu?
- Já, það er svo auðvelt. Og svo er úrvalið orðið mikið. Allt frá smáhlutum og upp í sófasett og borðstofumublur.
Ég var að hugsa um að kaupa borð og hillur í barnaherbergið. Heldur þú að það fáist á netinu?
- Það er ég viss um. Þú bara smellir á og velur vöruflokk og vörutegund og svo færðu allar upplýsingar um verð og gæði.
Ég held ég verði að koma mér heim. Maðurinn fer að koma og þá þarf maturinn að vera tilbúin.
- Ertu með eitthvað gott í matinn?
Ég var að hugsa um að hafa steiktar gellur með kartöflum og floti. Það finnst honum svo gott.
- En krökkunum, finns þeim þetta gott?
Þau verða bara að borða það sem kemur á borðið.
- Ekki þýðir að bjóða mínum börnum upp á svoleiðis. Þau ganga þá bara með diskinn beint að ruslafötunni.
Eru þín börn dugleg að taka til í herbergjunum sínum?
- Dóttir mín er mjög hirðusöm og hún býr alltaf um rúmið sitt. Hún brýtur sængina vel saman, strýkur úr lakinu og treður vel niður með dýnunni og breiðir rúmteppið yfir.
Það er annað með minn son. Hann skilur sængina eftir á gólfinu, koddinn er kanski á stólnum og dýnan hefur ekkert lak. Það er í kuðli úti í horni.
- Dóttir mín brýtur líka fötin sín saman og leggur þau snyrtilega inn í fataskápinn. Í efstu hillu eru peysur, svo eru buxur og bolir. Skyrtur og pils hanga á herðatrjám. Sokkar og sokkabuxur eru í sérstakri körfu. Sparifötin sín geymir hún í poka sem hún saumaði sjálf, hann hangir á slá inni í skápnum.
Ég veit ekki hvað ég á að gera með strákinn. Í gær vissi hann ekki hvar úlpan var. Og að spyrja hann um vettlinga og húfu þegar hann kemur úr skólanum þýðir ekki neitt.
Konurnar ganga út úr eldhúsinu og fram á gang.
Jæja – takk fyrir kaffið, við sjáumst. Bless
- Bless.
Ordliste - orðalisti
|
frystihús - fryseri
kaffibolli - kaffekopp
eldhús - kjøkken
huggulegt - flott, (hyggelig)
örbylgjuofn - mikrobølgeovn
heimilistæki - hvitevare
ísskápur - kjøleskap
hitaskápur - varmeskap
innrétting - innretting
bað - bad
raki - fuktighet
saggi - råte
bygginga-vöru-verslun –
byggevarehus
afsláttur - avslag
íbúð - leilighet
blokk - blokk
|
þvottahús - vaskerom
þvottavél - vaskemaskin
gufa - damp
bollastell - kaffeservice
matarstell - matservice
pöntunarlisti - ordrekatalog
netið - nettet (Internett)
borðstofa - spisestue
borðstofumublur - spisestuemøbler
hilla - hylle
barnaherbergi - barnerom
vöruflokkur - varegruppe
vörutegund - varesort
verð og gæði - pris og kvalitet
gellur - torsketunger
flot - fett (som flyter)
diskur - tallerken
|
ruslafata - søppelbøtte
rúm - seng
sæng - dyne
dýna - madrass
lak - laken
rúmteppi - sengeteppe
koddi - pute
kuðl - sammenkrøllet
peysa - genser
bolur - T-skjorte
skyrta - skjorte
pils - skjørt
herðatré - kleshenger
karfa - kurv
spariföt - finstasen
úlpa - kåpe, yttrejakke
vettlingar - votter
húfa - lua
|
>>Gå tilbake til kursplan - viderekomne