Islandsk

Velkommen

Kurstilbud

Nybegynnerkurs

Viderekomne kurs

Grammatikk

Linker

Dikt og diktere

Alt mulig -

Kursmateriell 1

Kursmateriell 2

Kursmateriell 3

Bøker og litteratur

Bakgrunn for nyhetene

E-Mail


 

Samtöl 4

 

>>Gå tilbake til kursplan - viderekomne

 

Forskjellige temaer – (Ýmsir efnisflokkar)

 

Íþróttir

Fotball – knattspyrna

Með hvaða liði leikur Veigar Páll Gunnarsson?

                        - Hann spilar med Stabæk í Noregi.

Er hann markvörður?

                        - Nei han er framherji, leikur með í sókninni.

Gegn hvaða liði lék Stabæk síðast?

                        - Þeir spiluðu á móti Víkingi frá Stafangri og unnu stórsigur.

Hvað skoruðu þeir mörg mörk?

                        - Ég held að leikurinn hafi farið þrjú núll.

Eru fleir íslendingar í norska fótboltanum?

                        - Já, þeir eru nokkrir. Einn er í Vålerenga og einn hjá Fredrikstad.

Geta þeir eitthvað – eru þeir góðir?

                        - Já, sumir þeirra leika með íslenska landsliðinu.

Mér er sagt að Veigar Páll skori mörg mörk.

                        - Það er alveg rétt, hann gerði tvö mörk í síðasta leik.

Hannes, sá sem leikur með Víkingi í Stafangri, er varnarmaður, er það ekki?

                        - Jú, hann leikur í vörninni, en tekur líka þátt í sóknarleiknum og skorar

              stundum mörk.

Já, hann er oft fyrir framan markið í hornspyrnu.

                        - Hann er svo hár og sterkur og góður skallamaður.

 

   

Ordliste – fotball

 lið – lag

leikur – kamp (lek)

að leika – å spille

að spila – å spille

markvörður – målvakt

framherji - spiss

sókn – angrep

vörn – forsvar

mark - mål

 

að skora – å skåre

að gera mark – å skåre

knattspyrna – fotball

fótbolti – fotball l

“boltinn” – fotballen

landslið – landslag

félagslið – klubblag

hjólhestaspyrna –

              brassespark

 

endamörk – endelinje

hliðarlína – sidelinje

miðlína – midtlinje

víti – straffe

vítaspyrna –

                straffespark

vítateigur – straffefelt 

markteigur – målfelt

stöng – stolpe

 

slá – tverrligger

skalli – hodespark

hornspyrna –

                 hjørnespark

sóknarleikur –

                  angrepsspill

varnarleikur –

                   forsvarsspill 

bolti – ball

knöttur - ball

 

 

Ski – skíði

Stundar þú skíði?

                        - Já ég fer oft á skíði þegar veðrið er gott.

Ertu í svigi eða göngu?

                        - Bæði – mér finnst svig skemtilegt en ganga er nauðsynleg?

Hvað meinar þú? Er nauðsynlegt að ganga á skíðum?

                        - Mér er sagt að skíðaganga sé mjög holl og svo er hún félagsleg.

Ég sé ekkert félagslegt við að ganga í röð í sporinu og segja ekki neitt.

            - Það er gott að ganga svolítinn spöl og stoppa svo og tala saman og

             halda svo áfram. Svo er öll fjölskyldan eða vinirnir með.

Áttu gönguskíði eða svigskíði? Eða ertu kanski komin(n) á snjóbretti?

                        - Ég á bæði gönguskíði og svigskíði. Ég hef prófað bretti, en gafst upp.

Hefur þú keppt á skíðum?

                        - Já, þegar ég var unglingur, keppti ég í svigi og stórsvigi.

Náðir þú einhverjum árangri?

                        - Einu sinni varð ég númer þrjú á Íslandsmóti fyrir unglinga. Það var í

             svigi.

Siglfirðingar voru einu sinni góðir á skíðum, líka í göngu og stökki.

                        - Þeir voru íslandsmeistrarar ár eftir ár. Tveir eða þrír þeirra stukku í

             Holmenkollen, en það er langt síðan.      

Er skíðaiðkun mikil á Íslandi?

                        - Hún er talsverð og hefur farið vaxandi, sérstaklega sem frístundaiðkun.

Ganga íslendingar mikið á gönguskíðum?

                        - Ekki eins mikið og norðmenn. Skíðabrekkurnar eru vinsælli.

Eru skíðabrekkur víða á Íslandi?

                        - Það eru stór skíðasvæði við Reykjavík og Akureyri. Það eru líka góð

              skíðasvæði við Ísafjörð á vestfjörðum og í Oddsskarði á Austurlandi.

Og það er líklega mikill snjór á Íslandi, er það ekki?

                        - Það er stærsta vandamálið. Það er svo óöruggt med snjó.

Ég heyrði að þegar það er gott veður, þá vantar snjó og þegar nægur snjór er þá er allt

vitlaust í veðrinu.

                        - Það er oft þannig. Sum árin er alls enginn snjór.

Hvar æfir þá keppnisfólk?

                        - Flest allir sem keppa í alþjóðlegurm mótum, æfa erlendis. Margir æfa í

             Noregi.

Það er þá ekkert vinsælt að fara til Íslands til þess að stunda skíði?

                        - Nei, flestir útlendingar sem koma til Íslands og fara á fjöll, nota til þess

                        sérbúna jeppa.

Eru það svona torfærutröll?

                        - Kanski ekki alveg, en næstum því. Það eru stórir jeppar.

 

Friidrett – frjálsar íþróttir

Íslendingar eiga marga frábæra frjálsíþróttamenn.

                        - Í hverju keppa þeir?

Það eru til dæmis tvær stelpur sem keppa í stangarstökki. Önnur þeirra varð númer sex á ólympíuleikunum í Aþenu.

                        - Er eitthvað sundfólk að keppa? Það eru svo margar sundlaugar á

             Íslandi.

Já, það eru margir góðir sundmenn, bæði strákar og stelpur. Ég held að einhver þeirra eigi Norðurlandamet.

                        - Hvað heita helstu frjálsíþróttagreinarnar á íslensku?

Hástökk, langstökk, þrístökk, stangarstökk.

                        - Það eru stökkin eða stökkgreinarnar, er það ekki?

Já og svo eru köstin - kúluvarp, kringlukast, sleggjukast og spjótkast.

                        - En halupagreinar, hvað heita þær?

Spretthlaup eru styttri hlaupin og langhlaup eða þolhlaup eru þau löngu.

           - Island hefur oft átt góða fjölþarautarmenn. Hvernig er það núna?

Það hafa ekki verið margir en alltaf einn og einn góður tugþrautarmaður. Svo er líka til fimmþraut. Þar eru bara fimm greinar.

                        - Eru einhverjar séríslenskar íþróttagreinar?

Íslensk glíma er sérstök og ég held einstök í heiminum.

                        - Hvernig fer hún fram?

Það eru tveir sem glíma. Kapparnir, glímukapparnir, hafa á sér sérstök glímubelti. Beltin eru einu tökin sem glímukapparnir hafa hver á öðrum. 

                        - Mega þeir ekki nota fætur eða taka utan um hvern annan?

Þeir mega nota fætur en aldrei sleppa takinu í glímubeltið, nema við fall. Fæturnar má bara nota á sérstakan hátt, það eru kölluð brögð.

                        - Eru margir keppendur í glímu á Íslandi.

Nei það eru fáir. Stundum eru bara örfáir keppendur á Íslandsglímunni, en það kallast íslandsmótið í glímu. Sigurvegarinn kallast glímukóngur Íslands það árið.

 

 >>Gå tilbake til kursplan - viderekomne