>>Gå til kursplan - viderekomne
Bókmenntir
Mér er sagt að íslendingar lesi mikið og meira en flestar aðrar þjóðir?
- Íslendingar lásu mikið og gera það enn. Þeir lesa samt minna núna.
Hverskonar bókmenntir eru gefnar út á Íslandi?
- Allt milli himins og jarðar. Fagurbókmenntir, ljóðlist, fagbækur, léttmeti í
kiljum, hefti og bæklingar. Tímarit og blöð.
Hvað með íslendingasögurnar, eru þær lesnar mikið?
- Það er alltaf talsverður hópur sem les sögurnar. Svo er til áhugahópur um íslendingasögurnar og söguslóðir.
Íslendingasögurnar hljóta að vera mjög gott myndefni?Hvaða sögur hafa verið kvikmyndaðar?
- Það er alveg rétt. Gísla saga Súrssonar var kvikmynduð og þótti takast vel.
Hefur Njálssaga verið kvikmynduð – eða var það bara brandari?
- Njálssaga er stundum kölluð Brennunjálssaga. Það er vegna þess að Njáll er brenndur inni á bæ sínum, Bergþórhvoli. En sagan hefur ekki verið kvikmynduð, bara bókin.
Hvernig má það vera? Ekki sagan, heldur bara bókin.
- Friðrik Þór Friðriksson gerði kvikmynd sem heitir “Brennur Njálssaga” og er um það bil hálftíma löng. Þar er bókinni flett og þegar kemur að því að bærinn brennur þá kviknar í bókinni og hún brennur blaðsíðu fyrir blaðsíðu.
Er eitthvað gaman að myndinni, gerist eitthvað?
- Ekkert annað en að bókinni er flett og hún brennur svo í lokin.
Hvaða rithöfundur er merkastur á Íslandi nútímans?
- Án efa Halldór Kiljan Laxness. Hann er eini íslendingurinn sem hefur fengið Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.
Er Halldór á lífi ennþá, mig minnir að hann hafi dáið hér fyrir fáum árum?
- Hann dó árið tvö þúsund (2000).
En af yngri höfundum, eru einhverjir þekktir, til dæmis á Norðurlöndunum?
- Það eru nokkrir talsvert þekktir innan bókmennta og lista.
Nefndu mér einhver nöfn.
- Einar Már Guðmundsson og nafni hans Einar Kárason eru hvað þekktastir og hafa verið þýddir á norsku.
Veistu hver Sjón er?
- Hann er rithöfundur og listamaður og fékk bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs fyrir árið 2005.
Sjón er ekki mikið þekktur í Noregi. Veistu af hverju?
- Sjón heitir Sigurjón Birgir Sigurðsson. Sjón er listamannsnafn. Hann er þekktari út um heim enn hér. Hann var tilnefndur til Oscar kvikmyndaverðlauna fyrir söngtextana í kvikmyndinni Dancing in the dark, sem Björk sðng. Hann semur mikið fyrir Björk.
Ég hef heyrt að margir íslenskir rithöfundar geti lifað af ritstörfum á Íslandi, þó að
markaðurinn fyrir íslenskar bækur sé í raun lítill.
- Það er til fyrirkomulag sem heitir listamannalaun. Það eru alltaf töluvert margir listamenn sem fá laun frá ríkinu bara til þess að stunda listsköpun. Það eru margir rithöfundar í þeim hópi.
Kvikmyndir
Ísland er orðin kvikmyndaparadís, er það ekki rétt?
- Það er kanski orðum aukið, en framleiðsla kvikmynda er orðin stór
atvinnugrein á Íslandi.
Íslendingar fara mikið í bíó og það eru mörg kvikmyndahús á Íslandi.
- Það eru mörg kvikmyndahús í Reykjavík og stærstu bæjunum, en annarstaðar eru bíóhúsin horfin.
Af hverju eru bíóin horfin, vill fólk ekki fara í bíó til að horfa á góðar myndir?
- Sjónvarpið tók fyrst áhugann og svo kom myndbandið. Fólk bíður eftir því að myndirnar koma á myndbandi eða geisladiski.
Það hafa verið kvikmyndahús á Íslandi lengur en í flestum öðrum löndum, er það rétt?
- Já, íslendingar hafa alltaf verið fljótir til að nýta sér nýjungar. Ég held að fyrsta kvikmyndahúsið hafi verið starfrækt á Íslandi um aldamótin nítjánhundruð.
En kvikmyndaframleiðsla byrjaði ekki þá á Íslandi?
- Ekki alveg, en það eru til kvikmyndir frá því snemma á öldinni.
Hvenær komu fyrstu leiknu kvikmyndirnar.
- Ég held að það hafi verið fyrir seinni heimsstyrjöldina.
Voru það alvöru kvikmyndir, eða bara áhugamennska?
- Það voru alvöru kvikmyndir með leikurum og leikstjórum og fagfólki.
Voru þetta margar kvikmyndir eða bara ein og ein?
- Bara ein og ein. Það var fyrst eftir um það bil nítján hundruð og sjötíu
(1970) að menntaðir kvikmyndaleikstjórar komu. Tilkoma sjónvarpsins hafði líka mikið að segja fyrir kvikmyndaframleiðsluna.
Hvernig myndir voru þetta, sem komu eftir nítján hundruð og sjötíu?
- Bæði frumsamdar myndir, eftir eigin handriti, og myndir gerðar eftir
íslenskum bókmenntum. Oftast eftir skáldsögum þekktra rithöfunda.
Getur þú nefnt einhver dæmi?
- Kvikmyndin “Sjötíu og níu af stöðinni” er stundum kölluð fyrsta
nútímakvikmyndin, en hún var gerð eftir skáldsögu Indriða G Þorsteinssonar með sama nafni.
Einhver dæmi um frumsamdar myndir?
- Líf myndirnar eftir Þráinn Bertelsson, Nýtt líf, Dalalíf og Löggulíf eru
gamanmyndir.
Hvaða kvikmyndir eru mest þekktar og vinsælar af seinni tíma myndum?
- Myndir Hrafns Gunnlaugssonar, Hrafninn flýgur og Í skugga hrafnsins, eru þekktar. Síðar koma myndir Friðriks Þórs Friðrikssonar. Þær eru margar og flestar mjög góðar. Núna er Baltasar Kormákur orðinn þekktur leikstjóri.
Hvernig myndir eru þessar nýju kvikmyndir?
- Þær eru alla vega. Flestar eru mjög íslenskar. Aðrar eru með alþjóðlegu ívafi með alþjóðlegan markað í huga.
Um hvað er fjallað í íslenskum kvikmyndum?
- Flestar eru um íslenskt þjóðfélag. Landið leikur stórt hlutverk. Það er mikið um að landið sé notað sem leiksvið, annaðhvort fegurðin eða hrikaleikinn eða þá að reynt er að sýna fólkið í landinu á sama hátt, fallegt og ljótt, vont og gott, hrjúft og slétt.
Er einhver sérstök mynd sem lýsir þessu best?
- Já, “Cold fever” eftir Friðrik Þór. Hún segir frá japana sem kemur til Íslands og sér landið og fólkið með framandi augum.
Líkjast íslenskar kvikmyndir kanski kvikmyndum fra Finnlandi, þungar og flóknar?
- Nei, en ertu viss um að finnum finnist finnskar kvikmyndir þungar og flóknar?
Nei, ég veit það ekki, en mér hefur alltaf fundist finnskar kvikmyndir erfiðar.
- Sumar íslenskar kvikmyndir eru sjálfsagt erfiðar fyrir útlendinga,en auðveldar fyrir íslendinga.
Ordliste – orðalisti
|
kvikmynd – film kvikmyndaaparadís – filmparadis kvikmyndahús – kino kvikmyndaleikari – filmskuespiller |
kvikmyndaleikstjóri – filmresisør kvikmyndaframleiðandi – filmprodusent
bíó – kino
sjónvarp – fjernsyn
myndband – video |
geisladiskur – CD
frumsamin mynd (kvikmynd) – original film
söguleg mynd – historisk film
heimildarmynd – dokumentar
gamanmynd – morofilm |
Leikhús
Hvernir stendur leiklist á Íslandi?
- Leiklist stendur með blóma. Það eru að minnsta kosti þrjú atvinuleikhús og fjöldi leikhópa. Sumir eru atvinnuhópar og aðrir áhugahópar.
Hvað heita atvinnuleikhúsin?
- Þjóðleikhúsið er ríkisrekið og starfar í virðulegu og fallegu húsi í Reykjavík. Borgaleikhúsið er sjálfseignastofnun í Reykjavík og starfar í nýju leikhúsi. Svo er Leikfélag Akureyrar atvinnuleikfélag á Akureyri og starfar í gamalli og fallegri byggingu.
Hverskonar leikverk eru sett upp?
- Bæði þýdd sígild verk og frumsamin íslensk. Reyndar eru íslensku leikverkin þau vinsælustu. Þau eru kassastykki. Söngleikir eru líka mjög vinsælir.
Er markaður fyrir margar frumsýningar á Íslandi, þegar fólkið er ekki fleira en um það bil helmingur íbúa í Ósló?
- Sum verk eru sýnd mjög oft, sem tugum skiptir. Stundum ganga sýningar á sama verkinu allt sýningarárið.
Geta íslendingar lært leiklist á Íslandi?
- Það er hægð að læra allar algengustu listgreinar á Íslandi. Leikskóli
Þjóðleikhússins starfaði lengi. Ég held að sá skóli sé núna hluti af Listaháskóla Íslands.
Ordliste – orðalisti
|
leikhús – teater
leiklist – teaterkunst
leikfélag – teaterforening |
sígild verk – klassisk verk
frumsamin – originale verk |
verk – taterstykke
leiksýning – skuespill, forestilling
listgrein – kunstart |
>>Gå til kursplan - viderekomne