>>Gå tilbake til kursplan - viderekomne
Gamlir kunningjar hittast eftir mörg ár. Annar hefur búið í Noregi en hinn á Íslandi. Þeir hittast á æskuslóðunum. Það er margs að minnast.
- Sæll og blessaður, gama að sjá þig!
Sömuleiðis, komdu sæll. Hvar hefur þú alið manninn?
- Ég hef verið búsettur í Noregi í þrettán ár – í Ósló.
Svo þú ert bara orðinn norsari! Hvernig er að búa í Ósló?
- Það er mjög gott, fólkið er gott og kaupið ágætt, en maturinn gæti verið betri.
Er norski maturinn ekki góður?
- Jú, jú, en það vantar slátur og svið og svo blessaða tólgina. En hvar hefur þú haldið þig?
Ég flutti suður og bjó í Keflavík í nokkur ár og flutti svo til Reykjavíkur. Núna búum við, fjölskyldan, í nýja hverfinu í Grafarvogi.
- Ég ætlaði ekki að þekkja mig í Reykjavík, byggðin hefur vaxið svo mikið og ný hverfi alls staðar.
Já, það eru allir að flytja suður. Landsbyggðin er að tæmast.
- Þú vannst í verksmiðjunni þegart ég fór út til Noregs, hvað gerir þú núna?
Ég var að vinna við smíðar í Keflavík en fór svo í iðnnám og lærði húsgagnasmíði. Ég vinn núna hjá IKEA.
- Og það er alltaf nóg að gera – og kaupið hátt!
O,nei, ekki get ég sagt að kaupið sé hátt, það er líklega helmingi hærra í Noregi.
- Ekki kvarta ég. Ég starfa sjálfstætt og það má segja að ég skammti mér kaup. Stundum hef ég miklu meira en nóg og stundum bara rétt svona fyrir salti í grautinn.
Hvað ertu að gera? Rekur þú eigið fyrirtæki?
- Já, ég lærði arkitektúr í Ósló og rek eigin stofu. Við erum þrjú sem vinnum þar og svo ritari í hálfu starfi. Ég og annar arkitekt og svo tækniteiknari.
Er alltaf nóg að gera í byggingarbransanum, það er allavega nóg af olíupeningum til að sprauta inn í atvinnulífið?
- Það hefur verið mikið að gera síðustu árin. Við höfum líka verið heppin með viðskiptavini. Lánið hefur leikið við okkur.
Hvernig eru norðmenn? Eru þeir eins ferkantaðir og sagt er? Það segja allir að skrifræðið sér ferlegt í Noregi.
- Norðmenn fara eftir reglum og þeir setja margar reglur. Íslendingar setja margar reglur en þeir fara ekkert eftir þeim. Það er munurinn.
Það er allt svo dýrt hjá norsurunum. Bílarnir á tvöföldu verði miðað við okkur.
- Það er allur gangur á því, en kaupið er líka miklu hærra. Norðmenn eyða ekki aurunum sínum í allskonar lúxus eins og íslendingar gera.
Það er nú enginn lúxus, hér hjá okkur. Fólk verður nú að hafa húsaskjól og geta komist á milli.
- En, það þarf ekki að búa í þrjúhundruð fermetra einbýlishúsi með þrefaldan bílskúr og tvo til þrjá bíla fyrir fjögurra manna fjölskyldu!
Það er alve rétt. Margir hafa byggt sér grafhýsi úr steinsteypu en búa bara í bílskúrnum.
- Í Noregi er ekki leyfilegt að flytja inn í hús fyrr en allt er tilbúið og samþykkt af byggingaryfirvöldum.
Þannig ætti það líka að vera á Íslandi, en reglan er að fólk flytur inn í húsið næstum því áður en byrjað er að byggja.
- Það er nú alltaf gama að koma heim á æskuslóðirnar. Hér hefur ekkert breyst, allt við það sama.
Já, ég held að, meira að segja, holurnar í götunum séu þær sömu og þegar við lékum okkur hér sem strákar.
- Og fjallið og fjaran eru hér enn, en allar bryggjurnar með bátunum eru farnar. Núna eru það bara stór verksmiðjuskip sem stunda veiðar.
En það var nú alltaf gaman í gamla daga .....
- Já, það var gaman í gamla daga .......
>>Gå tilbake til kursplan - viderekomne